Innlent

Stöðvuðu skemmtanahald á Selfossi í nótt

Lögreglan á Selfossi stöðvaði veitingarekstur og vísaði gestum á dyr á skemmtistað í bænum, þar sem allt var í fullum gangi eftir lokunartíma, sem er klukkan eitt eftir miðnætti.

Þó nokkur fjöldi var þá enn á staðnum og báru sumir með sér veitingarnar út úr húsinu, sem er óheimilt. Veitingamaðurinn á sekt yfir höfði sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×