Innlent

Axarárásin upplýst

Mynd úr safni
Lögreglan á Selfossi hefur upplýst að ástæða þess árás með öxi sem átti sér stað um helgina var vegna uppgjörs árásarmanns og brotaþola.

Fjórir menn voru handteknir vegna árásar á tvo menn, en þeim hefur öllum verið sleppt.

Næst tekur við vinna við úrvinnslu ganga svo ákæruvald geti tekið afstöðu um framgang málsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þess má geta að lögreglan á Selfossi naut aðstoðar frá Sérsveit og fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra auk Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu í þessu máli og þegar mest var voru um tólf lögreglumenn samtímis að sinna þessu verkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×