Stéttarfélög vilja fund með Isavia - óánægja á meðal starfsmanna 7. mars 2011 10:48 Frá Leifsstöð.
Formenn þriggja stéttarfélaga innan vébanda BSRB ætla að fara fram á fund með forstjóra og stjórnarformanni Isavia, ásamt með forsvarsmönnum BSRB, vegna dóms vegna kynferðislegrar áreitni sem upp kom hjá fyrirtækinu á dögunum. Félögin þrjú, Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag íslenskra flugumferðarstjóra og SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu, héldu sameiginlegan fund um málið í síðustu viku og kom þar fram óánægja vegna þessa máls, sem og annarra hjá fyrirtækinu, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu BSRB. Fundurinn var haldinn á miðvikudaginn var og þar mættu félagsmenn sem starfa hjá Isavia. „Mikil ólga kom fram meðal fundarmanna bæði vegna þessa máls og einnig vegna annarra mála sem tengjast starfsmanna- og mannauðsmálum hjá fyrirtækinu,“ segir í samþykkt fundarins. Þá kröfðust fundarmenn úrbóta svo að starfsmönnum geti liðið vel með sín störf og verið stoltir af sínum vinnustað. „Eins og staðan er nú vantar töluvert upp á það. Farið verður á leit við forsvarsmenn fyrirtækisins að halda slíkan fund á næstu dögum.“
Tengdar fréttir Yfirmaður hjá ISAVIA í leyfi vegna kynferðislegrar áreitni Starfsmaður ISAVIA sem var fundinn sekur um kynferðislega áreitni gagnvart samstarfskonu sinni er kominn í leyfi. Samkvæmt upplýsingum frá ISAVIA var um að ræða sameiginlega ákvörðun stjórnenda fyrirtækisins og hans. 10. febrúar 2011 14:13 Isavia: Niðurstaða dómsins kemur verulega á óvart Forsvarsmenn Isavia segja að niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness, um að fyrirtækið greiði starfsmanni 1,8 milljónir vegna kynferðislegrar áreitni af hálfu starfsmanns, komi verulega á óvart. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að farið verður yfir dóminn og afleiðingar hans metnar. 9. febrúar 2011 18:10 Isavia-dómurinn gefur „fordæmi í jafnréttismálum“ „Dómurinn hefur mikið fordæmisgildi þar sem tekin er afstaða til þess hvort ákveðið athæfi hafi verið kynferðisleg áreitni á vinnustað og hvort atvinnurekandi hafi brugðist við með réttum hætti í kjölfar atviksins samkvæmt skilgreiningum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Málið hefur þar af leiðandi mikla þýðingu fyrir allt launafólk enda viðurkennd rík ábyrgð atvinnurekanda í slíkum málum," segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, í grein þar sem hún reifar mikilvægi dóms í máli konu sem starfaði hjá Isavia og varð fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu yfirmanns síns. 11. febrúar 2011 13:38 Formaður UMFN ætti að segja af sér ormaður UMFÍ segir formann Ungmennafélags Njarðvíkur skyldugan til að segja af sér eftir að dómur taldi sannað að hann hefði áreitt konu kynferðislega. Maðurinn er í leyfi frá starfi sínu hjá Isavia þar til annað verður ákveðið. 16. febrúar 2011 10:00 Stjórn Ísavía kemur saman vegna kynferðislegrar áreitni starfsmanns Starfsmaður Ísavía sem áreytti samstarfskonu sína kynferðislega hefur verið sendur í ótímabundið leyfi. Stjórn Ísavía mun koma saman til að fjalla um málið. 10. febrúar 2011 19:30 Isavia málið: Tímamótadómur að mati lögfræðings BSRB Tímamótadómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar ríkisfyrirtækið Ísavía var dæmt til að greiða konu miskabætur vegna kynferðislegrar áreitni af hálfu hátt setts yfirmanns. Lögmaður BSRB segir málið fordæmisgefandi. Yfirmaðurinn er enn við störf. 9. febrúar 2011 19:34 Isavia gert að greiða bætur fyrir kynferðislega áreitni starfsmanns „Dómurinn var að falla í dag,“ svarar Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, þegar fréttamaður spurði hana hvort það væri eðlilegt að starfsmaður, sem beitti undirmanns sinn kynferðislegri áreitni, væri enn við störf hjá fyrirtækinu. 9. febrúar 2011 15:15 Mest lesið Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Innlent Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Innlent Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið Innlent „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ Innlent „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Innlent Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu Innlent „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Innlent Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Innlent Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Innlent Fleiri fréttir Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Fjölskyldur sendar úr landi og viðvörunarkerfi í Grindavík Enn gasmengun í lægðum en rafleiðni nálgast eðlileg gildi Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu „Fullorðna fólk, grow up!“ Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Rafleiðni og vatnshæð aftur lækkandi í ánni Skálm Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Einn var stunginn í Breiðholti Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Dagskrá Hinsegin daga og bein útsending frá hátíðahöldum „Sjaldan hefur öðru eins stórgrýti verið kastað úr glerhýsi“ Vara við gasmengun við upptök Skálmar og Múlakvíslar Á bak og burt eftir að hafa brotið og bramlað í bústað Ummælin komi á óvart „jafnvel frá Sjálfstæðisflokknum“ Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Sjá meira
Yfirmaður hjá ISAVIA í leyfi vegna kynferðislegrar áreitni Starfsmaður ISAVIA sem var fundinn sekur um kynferðislega áreitni gagnvart samstarfskonu sinni er kominn í leyfi. Samkvæmt upplýsingum frá ISAVIA var um að ræða sameiginlega ákvörðun stjórnenda fyrirtækisins og hans. 10. febrúar 2011 14:13
Isavia: Niðurstaða dómsins kemur verulega á óvart Forsvarsmenn Isavia segja að niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness, um að fyrirtækið greiði starfsmanni 1,8 milljónir vegna kynferðislegrar áreitni af hálfu starfsmanns, komi verulega á óvart. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að farið verður yfir dóminn og afleiðingar hans metnar. 9. febrúar 2011 18:10
Isavia-dómurinn gefur „fordæmi í jafnréttismálum“ „Dómurinn hefur mikið fordæmisgildi þar sem tekin er afstaða til þess hvort ákveðið athæfi hafi verið kynferðisleg áreitni á vinnustað og hvort atvinnurekandi hafi brugðist við með réttum hætti í kjölfar atviksins samkvæmt skilgreiningum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Málið hefur þar af leiðandi mikla þýðingu fyrir allt launafólk enda viðurkennd rík ábyrgð atvinnurekanda í slíkum málum," segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, í grein þar sem hún reifar mikilvægi dóms í máli konu sem starfaði hjá Isavia og varð fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu yfirmanns síns. 11. febrúar 2011 13:38
Formaður UMFN ætti að segja af sér ormaður UMFÍ segir formann Ungmennafélags Njarðvíkur skyldugan til að segja af sér eftir að dómur taldi sannað að hann hefði áreitt konu kynferðislega. Maðurinn er í leyfi frá starfi sínu hjá Isavia þar til annað verður ákveðið. 16. febrúar 2011 10:00
Stjórn Ísavía kemur saman vegna kynferðislegrar áreitni starfsmanns Starfsmaður Ísavía sem áreytti samstarfskonu sína kynferðislega hefur verið sendur í ótímabundið leyfi. Stjórn Ísavía mun koma saman til að fjalla um málið. 10. febrúar 2011 19:30
Isavia málið: Tímamótadómur að mati lögfræðings BSRB Tímamótadómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar ríkisfyrirtækið Ísavía var dæmt til að greiða konu miskabætur vegna kynferðislegrar áreitni af hálfu hátt setts yfirmanns. Lögmaður BSRB segir málið fordæmisgefandi. Yfirmaðurinn er enn við störf. 9. febrúar 2011 19:34
Isavia gert að greiða bætur fyrir kynferðislega áreitni starfsmanns „Dómurinn var að falla í dag,“ svarar Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, þegar fréttamaður spurði hana hvort það væri eðlilegt að starfsmaður, sem beitti undirmanns sinn kynferðislegri áreitni, væri enn við störf hjá fyrirtækinu. 9. febrúar 2011 15:15