Innlent

Klessti bíl í Skuggahverfinu og fór í heimsókn

Ekið var á kyrrstæðan mannlausan bíl í Skuggahverfinu í Reykjavík i nótt og sáu vitni tvær konur hlaupa af vettvangi. Lögreglumenn náðu að rekja spor þeirra í snjónum heim að húsi, þar sem þær reyndust báðar vera gestkomandi, og handtóku konuna, sem talið er að hafi ekið bílnum. Hún gistir nú fangageymslur. Bíll hennar skemmdist mikið og bíllinn sem hún ók á töluvert, að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×