Innlent

Lamdi mann í andlitið með bjórglasi

Árásin átti sér stað í miðborginni.
Árásin átti sér stað í miðborginni.
Karlmaður er í haldi lögreglunnar eftir að hafa slegið annan mann í andlitið með bjórglasi. Sá sem fékk glasið í sig skast verulega illa en árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistað við Tryggvagötuna í nótt.

Annar karlmaður er einnig í haldi lögreglunnar. Sá hafði ráðist á leigubílstjóra eftir að þeir deilur sem spruttu upp þeirra á milli.

Þá voru fimm ökumenn teknir fyrir að aka undir áhrifum vímuefna í nótt. Lögreglan segir nóttina annars hafa verið þokkalega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×