Innlent

Á annað hundrað manns leitaði aðstoðar vegna nauðgana

Karen D Kjartansdóttir skrifar
Samtökin Stígamót sem berjast gegn kynferðisofbeldi kynntu tölur úr ársskýrslu sinni í morgun. Samtökin fengust við alls tvö hundruð sjötíu og fimm ný mál.

Fjöldi þeirra sem leituðu hjálpar vegna nauðgana og nauðgunartilrauna voru rúmlega 120. Hópnauðganir voru 13 en gerendur í þeim voru frá tveimur og upp í fjóra. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðsbrotadeildar lögreglunnar, segir að þær hópnauðgunar sem lögreglan hafi fengist við séu oftar en ekki tengd ungum stúlkum. Lítill hluti þessara mála endi hins vegar hjá lögreglu.

Þá kemur fram í skýrslunni að svokallaðar lyfjanauðganir voru 17. Björgvin segist að fólk hafi leiti til þeirra eftir að hafa sætt hrottalegri meðferð undir áhrifum lyfja og gat því ekki varið sig. Hann segir þessi mál einkar erfið við að etja enda séu slíkir glæpir framdir af miklum ásetningi og þarfnist skipulagningar.

Jakob Kristinsson, prófessor í eiturefnafræði við læknadeild Háskóla Íslands, segir að á tímabilinu 2009 til 2010 hafi hann farið yfir sýni úr tuttugu og einum einstaklingi sem lögreglan hefur sent. Vímugjafar hafi fundist í tuttugu þeirra. Í ellefu tilvikum fannst alkahól í blóði fórnarlambanna, í 11 þeirra fannst amfetamín, róandi lyf fundust í tilfelli fjögurra þeirra og kannabis í tveimur. Lyfið rohypnol sem oft er kallað nauðgunarlyfið fannst ekki í neinu sýni.

Guðrún Jónsdóttir, talsmaður Stígamóta, segir að heimili fólks séu enn hættulegustu staðirnir ef svo megi segja. En svo virðist sem Brotin voru framin inn á heimilum fólks í um 60 prósent tilfella, en töluvert er um ofbeldi í opinberu rými. Þannig fengust Stígamót við 14 nauðganir sem áttu sé stað á útih útihátíðarnauðganir í ár, 10 kynferðisbrot áttu sér stað við eða á skemmtistöðum og 32 kynferðisbrot sem áttu sér stað utandyra.

Langfæst af þeim málum sem komu til kasta Stígamóta voru kærð en af þeim 370 manneksjum sem leituðum til samtakana sögðust 42 hafa kært eða um ellefu prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×