Innlent

Lögreglan fær 47 milljónir til að berjast gegn skipulögðum glæpum

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að tillögu innanríkisráðherra að veita 47 milljónum til tólf mánaða átaks lögreglunnar til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi. Átakið á að hefjast þegar í stað. Reynslan af átakinu verður metin fyrir lok ársins og ákveðið þá hvort halda skuli áfram.

Eins og kom fram á blaðamannafundi í gær hefur lögreglan vísbendingar um að alvarleg skipulögð glæpastarfsemi sé að færast í vöxt hérlendis og að alþjóðlegir glæpahringir séu að skjóta hér rótum. Fyrir liggja óyggjandi upplýsingar þess efnis að vélhjólaklúbburinn MC Iceland sé að verða  fullgildur klúbbur innan hinna alþjóðlegu vélhjólasamtaka Vítisengla eða Hells Angels (HA) sem Europol hefur skilgreint sem skipulögð glæpasamtök.

Í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu segir að nauðsynlegt sé að ráðast í átak til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi og hefja rannsókn af slíkri stærðargráðu að það komi ekki niður á öðrum brýnum verkefnum. Lögreglan telur að sérstök rannsókn á þessum glæpahópum taki 12-18 mánuði og að tiltekinn hópur rannsóknarlögreglumanna þurfi að helga sig henni eingöngu. Jafnframt þyrfti aðkomu sem nemur hálfu stöðugildi löglærðs fulltrúa/saksóknara. Rannsóknin yrði unnin sameiginlega af lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjóra á Suðurnesjum. Jafnframt kæmu að rannsókninni embætti ríkislögreglustjóra og tollstjóra auk annarra stofnana eftir atvikum. Náið samstarf yrði við erlend löggæsluyfirvöld, einkum á Norðurlöndum og við Europol en íslenskur tengslafulltrúi starfar í höfuðstöðvum stofnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×