Skemmdarvargarnir gáfu sig fram 2. mars 2011 15:00 "
Þau voru miður sín og báðust afsökunar," sagði Ingunn Hrund Einarsdóttir móðir Sunnu, 18 ára, um skemmdarvargana sem eyðilögðu og köstuðu eggjum í bílinn hennar Sunnu, Nissan Almera árgerð 2001, í fyrradag en þeir gáfu sig fram í gærkvöldi ásamt foreldrum sínum. Sjá viðtalið við Ingunni í meðfylgjandi myndskeiði en hún hefur fengið mörg símtöl frá ókunnugum Íslendingum og fyrirtækjum sem vilja hjálpa Sunnu, sem er með einhverfu, að koma bifreiðinni í lag. Sunna og fjölskylda hennar hafa ákveðið að gefa andvirði viðgerðar á bílnum, sem skemmdarvargarnir hafa samþykkt að greiða, óskert til samtaka Regnbogabarna sem hafa það að markmiði að gera börnum kleift að lifa án félagslegs áreitis og ofbeldis, af því að nokkur íslensk fyrirtæki og einstaklingar hafa tekið sig saman um að laga bílinn henni að kostnaðarlausu.
Tengdar fréttir Einelti af verstu gerð Átján ára dóttir Ingunnar Hrundar Einarsdóttur varð fyrir óskemmtilegri reynslu í morgun þegar hún sá sér til mikillar skelfingar að bíllinn hennar, silfurlitaður Nissan Almera árgerð 2001, var ekki ökufær því einhverjir höfðu í skugga nætur brotið öll ljósin og rúðuþurkurnar. Þá voru kopparnir fjarlægðir, loft tekið úr dekkjum og eggjum grýtt í framrúðu bílsins. "Hún er á nítjánda ári með ódæmigerða einhverfu," sagði Ingunn en dóttir hennar tók strætó í vinnuna í morgun þrátt fyrir að vera í sjokki. Dóttir Ingunnar hefur þurft að þola einelti síðan hún var átta gömul. Ingunn biður þá sem framkvæmdu verknaðinn að gefa sig fram. Sjá viðtalið við Ingunni og ástand bílsins í meðfylgjandi myndskeiði. 28. febrúar 2011 15:31 Erfitt að þola einelti Nítján ára einhverf stúlka segir erfitt að vera ávallt fórnarlamb eineltis. Bíll stúlkunnar var skemmdur í gær og eru sökudólgarnir enn ófundnir. Sunna Björk er nítján ára gömul og er með einhverfu. Í gær sögðum við frá því að skemmdarverk höfðu verið unnin á bíl hennar, ljós brotin og eggjum kastað í hann. Við hittum Sunnu Björk og móður hennar á kaffihúsi út á Granda - skammt frá vinnustað hennar. 1. mars 2011 20:31 Mest lesið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Innlent Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið Innlent „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ Innlent Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Innlent Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Innlent „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Innlent „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Innlent Einn var stunginn í Breiðholti Innlent „Sjaldan hefur öðru eins stórgrýti verið kastað úr glerhýsi“ Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu „Fullorðna fólk, grow up!“ Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Þyki málið miður og til greina komi að breyta gönguleið „Þetta getur ekki verið svona aftur á næsta ári“ „Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“ Rafleiðni og vatnshæð aftur lækkandi í ánni Skálm Hinseginfáni skorinn niður í Hveragerði Krakkar beri ekki heldur virðingu fyrir eigin úlpum og Airpods Einn var stunginn í Breiðholti Gengur ekki að fólk sé að rústa húsum á Þjóðhátíð Dagskrá Hinsegin daga og bein útsending frá hátíðahöldum „Sjaldan hefur öðru eins stórgrýti verið kastað úr glerhýsi“ Vara við gasmengun við upptök Skálmar og Múlakvíslar Á bak og burt eftir að hafa brotið og bramlað í bústað Ummælin komi á óvart „jafnvel frá Sjálfstæðisflokknum“ Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Sjá meira
Einelti af verstu gerð Átján ára dóttir Ingunnar Hrundar Einarsdóttur varð fyrir óskemmtilegri reynslu í morgun þegar hún sá sér til mikillar skelfingar að bíllinn hennar, silfurlitaður Nissan Almera árgerð 2001, var ekki ökufær því einhverjir höfðu í skugga nætur brotið öll ljósin og rúðuþurkurnar. Þá voru kopparnir fjarlægðir, loft tekið úr dekkjum og eggjum grýtt í framrúðu bílsins. "Hún er á nítjánda ári með ódæmigerða einhverfu," sagði Ingunn en dóttir hennar tók strætó í vinnuna í morgun þrátt fyrir að vera í sjokki. Dóttir Ingunnar hefur þurft að þola einelti síðan hún var átta gömul. Ingunn biður þá sem framkvæmdu verknaðinn að gefa sig fram. Sjá viðtalið við Ingunni og ástand bílsins í meðfylgjandi myndskeiði. 28. febrúar 2011 15:31
Erfitt að þola einelti Nítján ára einhverf stúlka segir erfitt að vera ávallt fórnarlamb eineltis. Bíll stúlkunnar var skemmdur í gær og eru sökudólgarnir enn ófundnir. Sunna Björk er nítján ára gömul og er með einhverfu. Í gær sögðum við frá því að skemmdarverk höfðu verið unnin á bíl hennar, ljós brotin og eggjum kastað í hann. Við hittum Sunnu Björk og móður hennar á kaffihúsi út á Granda - skammt frá vinnustað hennar. 1. mars 2011 20:31