Innlent

Ungmenni handtekin við innbrotstilraun

Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu gómuðu þrjú ungmenni þar sem þau voru að reyna að brjóta upp hurð á söluturni í Grafarvogi í nótt, og beittu kúbeini við það.

Lögreglan kom unglingunum í opna skjöldu og komust þeir ekki undan. Barnaverndaryfirvöldum var gert viðvart og lagði lögregla hald á kúbeinið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×