Innlent

Framsýn vísar kjaradeilu til sáttasemjara

Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar.
Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar.
Samninganefnd Framsýnar- stéttarfélags samþykkti í gærkvöldi að vísa kjaradeilu félagsins við Samtök atvinnulífsins til Ríkissáttasemjara. Í tilkynningu frá félaginu segir að viðræður aðila hafi gengið hægt og þolinmæði verkafólks því löngu brostin. „Um er að ræða almenna kjarasamninginn og kjarasamning vegna vinnu starfsfólks í veitinga - og gistihúsum og hliðstæðri starfsemi.“

Ríkissáttasemjari hefur boðað deiluaðila til fundar í karphúsinu á morgun klukkan ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×