Innlent

Framsóknarkonur lýsa vanþóknun á skopteikningu

Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna lýsir yfir algjörri vanþóknun á skopmyndateikningu, sem birt var í Morgunblaðinu á laugadag og sýnir Siv Friðleifsdóttur alþingismann, sem vændiskonu.

Stjórnin telur að blaðið og teiknarinn hafi farið langt yfir velsæmismörk og vegi að þingkonunninni með afar ósmekklegum hætti og fer fram á tafarlausa afsökunarbeiðni. Vændi sé grafalvarlegt samfélagslegt vandamál sem aukist í kreppu vegna slæmrar stöðu kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×