Innlent

Búið að landa 200 tonnum úr Baldvin frá Cuxhaven

Búið er að landa 200 tonnum af ferskum fiski, aðallega þroski, úr togaranum Baldvin frá Cuxhaven, sem kom til Dalvíkur á laugardagskvöldið.

Hluti aflans, sem fékkst úr kvóta Evrópusambandsins í Barentshafi, var unnn til útflutnings í fyrrinótt og sendur út ferskur með flugi á Frakklandsmarkað í gær.

Þetta mun vera í fyrsta skipti í meira en tuttugu ár, sem ferskum fiski er landað hérlendis úr skipi, skráðu í Evrópusambandinu, en Baldvin er í eigu dótturfélags Samherja í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×