Innlent

Fór of snemma af stað

Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur hjá lögreglunni á Selfossi í gærkvöldi og nótt. Ein kona var tekin ölvuð undir stýri klukkan hálf átta í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra taldi konan að áfengisvíman væri runnin af sér frá kvöldinu áður. Það hafi ekki verið rétt hjá henni því hún mældist langt yfir mörkum. Hún var svipt ökuleyfi til bráðabirgða.

Þá voru tveir ökumenn teknir hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt - annar fyrir ölvunarakstur og hinn fíkniefnaakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×