Innlent

Guðfríður Lilja aftur formaður félags- og tryggingamálanefndar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir verður formaður félags- og tryggingamálanefndar.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir verður formaður félags- og tryggingamálanefndar.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, hefur tekið við formennsku í félags- og tryggingamálanefndar Alþingis. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, tilkynnti þetta við upphaf þingfundar í morgun. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tók nýlega sæti á Alþingi að nýju eftir barnseignarleyfi. Hún var formaður nefndarinnar áður en hún fór í barneignaleyfi. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verður varaformaður nefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×