Sýknaður af ákæru um brot gegn syni 15. apríl 2011 09:58 Hæstiréttur. Mynd/Vilhelm
Hæstiréttur hefur sýknað karlmann sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn syni sínum. Manninum var gefið að sök að hafa á árinu 2009 farið upp í rúm til sonar síns, sem var í heimsókn hjá föður sínum, og brotið þar gegn honum með ýmsum kynferðislegum athöfnum, þar á meðal með því að fróa honum. Drengurinn skýrði móður sinni frá atvikinu þegar hann kom heim og hún kærði málið til lögreglu. Drengurinn sagði við skýrslutöku hjá lögreglu að faðir sinn hefði fengið sáðlát við athæfið. Nokkrum mánuðum síðar dró móðirin kæruna til baka. Eftir sýnatökur kom í ljós að sæðisblettir úr föðurnum fundust á hettupeysu sem hann var í við handtöku skömmu eftir hið meinta atvik. Samkvæmt framburði drengsins var það ekki sama peysa og maðurinn var í þegar meint brot átti að hafa átt sér stað. Í laki í rúmi drengsins fundust sæðisblettir sem voru frá drengnum komnir. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði sýknað manninn á þeirri forsendu að orð sonar stæðu gegn orði föður og ákæruvaldinu hefði ekki fært sönnur á að maðurinn hefði framið það brot sem honum var gefið að sök. Í dóminum var vísað til framburðar sambýliskonu mannsins, sem hafði séð feðgana saman í rúmi drengsins. Hún bar fyrir dómi að hún hafi ávarpað þá. Hvorugur hafi brugðist við og virst sem báðir væru sofandi. Hún hafi farið inn í annað herbergi, en haft hurðina opna. Síðar hafi þeir komið fram, og hún hafi ekki getað séð neitt athugavert í fasi drengsins, hvorki strax eftir að þeir komu fram né morguninn eftir. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms með nokkrum athugasemdum, en telur athugasemdirnar ekki nægilega veigamiklar til að ómerkja dóminn. Gerir dómurinn meðal annars athugasemdir við að héraðsdómur hafi talið framburð sambýliskonu ákærða honum í hag. Segir í dómi Hæstaréttar að samskipti feðganna í umrætt sinn hafi verið nánast engin, og því ekki talið að framburður sambýliskonunnar hafi sérstakt vægi í málinu. Ranglega var sagt í Fréttablaðinu í dag að sæðisblettir sem fundust á laki í rúmi drengsins væru frá hinum ákærða komnir. Eins og fram kemur í dómi Hæstaréttar leiddi rannsókn í ljós að þeir voru allir frá drengnum komnir. Fréttablaðið biðst afsökunar á þessum mistökum.
Mest lesið Árni Þórður er látinn Innlent Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Erlent Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Innlent Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Innlent Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Innlent „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Innlent Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ Innlent Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Enginn handtekinn í sérsveitaraðgerð í Vogahverfi Innlent Fleiri fréttir Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Alvarleg gabbútköll, nýtt neyslurými og bongóblíða í bænum Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ „Alvöru úttekt“ verði gerð á máli Brákarborgar Enginn handtekinn í sérsveitaraðgerð í Vogahverfi Árni Þórður er látinn Grunaður um heimilisofbeldi skömmu fyrir meint manndráp Ummerki eftir hlaupið stóra í sigkötlum í Mýrdalsjökli Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Fann skotfæri úr fórum nasista á Hlíðarfjalli Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Lokað vegna linnulausrar rigningar Segir líforkuver risastórt skref í átt að matvælaöryggi Þorvaldur Halldórsson látinn „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Sex vilja stýra Jafnréttisstofu Falsútköll, hvalreki og vígreift varaforsetaefni Steypireyður strandaði við Þorlákshöfn Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Sjá meira