Innlent

Vilja að Ásmundur Einar segi af sér

Ásmundur Einar Daðason.
Ásmundur Einar Daðason.
Félagsfundur svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum, sem haldinn var í gærkvöldi, skorar á Ásmund Einar Daðason, þingmann flokksins í Norðvesturkjördæmi, að segja nú þegar af sér þignmennsku.

Hann sé kosinn í nafni flokksins og hafi setið í umboði kjósenda hans. Ásmundur Einar hafi samþykkt vantraust á ríkisstjórn, sem Vinstri grænir eiga aðild að og sagt sig úr þingflokknum án samráðs við félögin, sem stóðu að framboði hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×