Innlent

Samfélagaverðlaun Fréttablaðsins afhent í dag

Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaut verðlaunin í fyrra.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaut verðlaunin í fyrra. MYND/Anton
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í dag. Verðlaunin verða afhent í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 15.

Þetta er sjötta árið í röð sem verðlaunin eru afhent.

Yfir þrjú hundruð tilnefningar til Samfélagsverðlaunanna bárust frá lesendum í ár.

Veitt verða verðlaun í fimm flokkum; frá kynslóð til kynslóðar, hvunndagshetja ársins, til atlögu gegn fordómum, heiðursverðlaun og samfélagsverðlaunin sjálf.

Verðlaunahafar munu fá gsm síma, utan samfélagsverðlaunahafans sem mun fá eina milljón króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×