Bjarni: Hagsmunir þjóðarinnar að kosið verði hið fyrsta 13. apríl 2011 16:53
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lagði fram tillögu sína um vantraust á ríkisstjórnina klukkan fjögur í dag. Bjarni sagði tillöguna lagða fram fyrir hönd allra þeirra sem gefist hafi upp á samstarfi núverandi stjórnarflokka. Hann líkti ríkisstjórninni við grindahlaupara sem hafi misstigið sig sig í upphafi hlaups og aldrei náð taktinum. Enginn hefði trú á því að hann nái í mark. Bjarni hvatti til þess að tillagan verði samþykkt svo Alþingi geti endurheimt virðingu og traust, sem séu forsendur uppbyggingar. Með því að boða til kosninga í vor væri verið að bjóða nýtt upphaf og gefa fólki kosti á því að velja á milli ólíkra leiða. Hann sagði nauðsynlegt fyrir þingið að endurheimta trúnað kjósenda. Þá sagði hann tillöguna lagða fram fyrir hönd allra þeirra sem gera kröfu um að alþingi vinni að mikilvægustu málum hverrar stundar. Bjarni sagði að þingmenn þurfi ekki að vera sammála um á hvaða forsendum tillagan sé samþykkt en benti á að sumir stjórnarþingmanna þurfi að spyrja sig að því hvort meiri hagsmunum sé fórnandi fyrir minni. Bjarni sagði mikilvægasta verkefnið vera að vaxa inn í framtíðina. Ríkisstjórninni hefði hinsvegar mistekist hrapalega í því verki. Þá vitnaði hann til ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur frá árinu 1994 þegar rætt var um vantrauststillögu á þáverandi ríkisstjórn þegar Jóhanna talaði um að ríkisstjórni yrði að njóta trausts almennings og atvinnulífs. „Lykillinn að viðreisn er að skapa verðmæti, sá fræjum fyrir uppskeru sem skilar sér í atvinnu á næstu árum," sagði Bjarni. Þá segir Bjarni augljóst að ESB aðild sé í andstöðu við meginþorra þjóðarinnar og segir hann aðildarferlið sem nú sé í gangi aðeins til þess fallið að auka á sundrung á meðal þjóðarinnar. „Hagsmunir þjóðarinnar krefjast þess að boðað verði til kosninga hið fyrsta," sagði Bjarni að lokum.
Mest lesið Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Erlent Þúsundir gagn-mótmælenda kæfðu boðaðar óeirðir Erlent Árni Þórður er látinn Innlent Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Innlent Er óviss um friðsamleg forsetaskipti ef Trump tapar Erlent Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Innlent Segir réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa Erlent Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ Innlent Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Innlent „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Innlent Fleiri fréttir Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Alvarleg gabbútköll, nýtt neyslurými og bongóblíða í bænum Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ „Alvöru úttekt“ verði gerð á máli Brákarborgar Enginn handtekinn í sérsveitaraðgerð í Vogahverfi Árni Þórður er látinn Grunaður um heimilisofbeldi skömmu fyrir meint manndráp Ummerki eftir hlaupið stóra í sigkötlum í Mýrdalsjökli Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Fann skotfæri úr fórum nasista á Hlíðarfjalli Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Lokað vegna linnulausrar rigningar Segir líforkuver risastórt skref í átt að matvælaöryggi Þorvaldur Halldórsson látinn „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Sex vilja stýra Jafnréttisstofu Falsútköll, hvalreki og vígreift varaforsetaefni Steypireyður strandaði við Þorlákshöfn Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Sjá meira