Innlent

Bílvelta á Biskupstungnabraut - Lögreglan skutlaði farþegum í Herjólf

Fjórir sluppu ómeiddir þegar bíll valt á Biskupstungnabraut í morgun. Fólkið var á leið til Þorlákshafnar til þess að ná Herjólfi. Að sögn lögreglu virðist óhappið hafa orðið með þeim hætti að bíll tók fram úr bílnum sem valt og við það slettist snjór og krap upp á framrúðuna.

Ökumaðurinn missti þá stjórnina á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór útaf og valt. Allir voru í beltum og sluppu því ómeiddir. Lögreglan skutlaði fólkinu því til Þorlákshafnar og náðu þau ferjunni til Eyja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×