Innlent

Mikið um sjúkraflutninga

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Mikið hefur verið um sjúkraflutninga hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í dag en alls hafa sjúkraflutningamenn farið í 35 útköll. Það er heldur mikið miðað við frídag að sögn varðstjóra slökkviliðsins. Annars hefur dagurinn verið rólegur hjá slökkviliðinu.

Þá hlekktist vélhjólamanni á og féll hann í götuna á Hvalfjarðarveginum í hádeginu í dag.

Maðurinn tók þátt í fjöldaakstri vélhjólaeigenda sem voru á leiðinni upp á Akranes. Maðurinn reyndist ekki illa slasaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×