Innlent

Verulega neikvæð áhrif af lagningu vegar um Berufjarðardal

Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum Axarvegar og Hringvegar um Skriðdal og Berufjarðarbotn.

Stofnunin kemst að þeirri niðurstöðu að fyrirhugaðar framkvæmdir muni hafa verulega neikvæð áhrif á  stórbrotið og tilkomumikið landslag á 6-7 km kafla í Berufjarðardal. Þá telur stofnunin ótvírætt að vegna landslagsaðstæðna á svæðinu sé ekki mögulegt að  koma fyrir vegamannvirki, af því umfangi sem fyrirhugað er, sem gæti  á nokkurn hátt fallið að landslaginu og sem hefði ekki í för með sér varanlegar breytingar á landslagi og ásýnd svæðisins.

Í álitinu kemur einnig fram að veglagning um Berufjarðarbotn muni hafa verulega neikvæð og óafturkræf áhrif á fugla og leirur sem njóta sérstakrar verndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×