Innlent

Olli ónæði á Eyrarbakka, fluttur til Reykjavíkur

Lögreglan á Selfossi var í gærkvöldi kölluð að húsi á Eryarbakka vegna manns, sem þar var gestkomandi, en var drukkinn og til vandræða.

Þegar lögreglan kom á vettvang reyndist þetta sami maðurinn og þeir höfðu fjarlægt úr þessu sama húsi í fyrrinótt fyrir sömu sakir, og vistað í fangageymslu á Selfossi um nóttina.

Honum var sleppt í gær en tók upp fyrri iðju. Nú var honum ekið til síns heima í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×