Innlent

Bjöllukonsert þingforseta: Höskuldur með hellu

„Ég held að vinnueftirlitið ætti að koma hingað, ég er búinn að vera með hellu í eyrum síðan í morgun," segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem lenti í harðri rimmu við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta þingsins, í morgun.

Höskuldur tók til máls undir liðnum fundarstjórn, þar sem fundarstjórn forseta er eingöngu til umræðu.

Þegar Höskuldur vék orðum að svörum iðnaðarráðherra í ræðu sinni, byrjaði Ásta Ragnheiðu að slá í bjölluna af krafti, svo miklum raunar, að Höskuldur heyrir ekkert með öðru eyranu.

Sjálfur ætlaði hann að óska eftir því að þingforseti beindi þeim tilmælum til ráðherra um að svara honum málefnalega, en Höskuldur sagði iðnaðarráðherra hafa veist að sér með fúkyrðaflaumi.

Ekki vildi betur til en að honum var vísað úr ræðustóli af þingforseta.

„Mér finnst ég vera órétti beittur," segir Höskuldur sem bætir við: „Það er orðið áhyggjuefni að hún sé að missa stjórn á skapi sínu með þessum hætti og þá skiptir engu hvort stjórnarandstaðan eða meirihluti talar."

Höskuldur vill meina að reglur séu aðrar nú en þær voru fyrir tíð Ástu. Hann segir það í raun eðlilegra að þingforseti tjái sig um ræðu þingmanna eftir að þeir hafa talað, en ræðutíminn undir þessum lið er aðeins ein mínúta.

„Ég held að þessi nýja tilhögun á fundarstjórn eigi stóran þátt í að virðing Alþingis sé afar lítil og bendi á að það eru fullt af aðilum í forsætisnefnd sem sitja við fundarstjórn án þess að svona lagað gerist," segir Höskuldur.

Höskuldur segir hávaðann í bjöllunni slíkan að vinnueftirlitið þyrfti að koma niður á Alþingi og hávaðamæla vinnustaðinn.


Tengdar fréttir

Forseti þingsins rak þingmann úr ræðustóli

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, var rekinn úr fundarstóli í morgun þegar rætt var um fundarstjórn forseta. Höskuldur ætlaði þá að svara Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra sem áður hafði verið í óundirbúnum fyrirspurnum, en hann sætti sig ekki við þau svör sem hann hafði fengið frá ráðherranum, um framkvæmdir á Bakka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×