Innlent

Laus úr haldi eftir hnífs­stungu á Akur­eyri

Kjartan Kjartansson skrifar
Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar á Akureyri eftir skemmtanahald næturinnar þar.
Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar á Akureyri eftir skemmtanahald næturinnar þar. Vísir/Vilhelm

Ungur karlmaður sem grunaður um að stinga annan með hnífi í miðbæ Akureyrar í fyrrinótt er laus úr haldi ásamt öðrum sem voru handteknir. Varðstjóri segir rannsókn málsins nánast lokið.

Árásin átti sér stað á miðbæjarsvæðinu á Akureyri, þar sem hátíðin Ein með öllu fer fram um verslunarmannahelgina, á þriðja tímanum á aðfararnótt laugardags. Sá sem varð fyrir stungunni er enn á sjúkrahúsinu á Akureyri en lögregla sagði að hann væri ekki talinn í lífshættu í gær.

Jóhann Olsen, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, staðfestir að sá sem er grunaður um árásina sé ungur karlmaður. Hann og aðrir sem voru í haldi vegna árásarinnar séu nú lausir.

Að öðru leyti segir Jóhann að hátíðin hafi gengið vel þó að alltaf gangi eitthvað á þegar margir komi saman til að skemmta sér. Fjórir fengu þannig að sofa úr sér í fangageymslum lögreglunnar í nótt fyrir ölvun og almennar óspektir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×