Innlent

Norðmenn setja kraft í olíuleit við Jan Mayen

Norsk stjórnvöld hafa sett olíuleit við Jan Mayen á fulla ferð og tilkynntu fyrir helgi að eyjan kynni að verða nýtt sem þjónustumiðstöð vegna olíuvinnslu. Skip er nú statt þar við hljóðbylgjumælingar og í næsta mánuði verður fjarstýrður kafbátur þar við botnrannsóknir.

Stefnuyfirlýsing norsku ríkisstjórnarinnar í olíumálum, sem kynnt var á föstudag, staðfestir þá stefnu sem fyrrverandi olíumálaráðherra Noregs, Terje Riis Johansen, markaði með táknrænni heimsókn til Jan Mayen fyrir tveimur árum. Nýi olíumálaráðherrann, Ola Borten Moe, segir ferlið þegar hafið við Jan Mayen og boðar að því verði fram haldið af fullum þunga.

Norðmenn láta ekki sitja við orðin tóm því undanfarnar þrjár vikur hefur sérsmíðað olíuleitarskip, Harrier Explorer, verið við hljóðbylgjumælingar á Jan Mayen-hryggnum á vegum Olíustofnunar Noregs og ná leitarferlar skipsins inn í íslenska lögsögu, þann hluta sem Íslendingar nefna Drekasvæðið. Samningur er í gildi milli ríkjanna um gagnkvæman 25 prósenta nýtingarrétt í lögsögu hvors annars og er ljóst að aukin áhersla Norðmanna á svæðið gæti haft verulega þýðingu fyrir Íslendinga.

Og ekki aðeins í framtíðinni því Seyðisfjörður fékk forsmekkinn fyrr í mánuðinum þegar Harrier Explorer kom þangað inn ásamt tveimur fylgdarskipum til að sækja sér vistir og þjónustu áður en haldið var á Jan Mayen-hrygginn. Í næsta mánuði áforma Norðmenn að nota fjarstýrðan kafbát þar til botnlagarannsókna og ætla svo á næsta ári að hefja grunnar boranir.

Norðmenn ætla raunar ekki að láta Íslendinga eina um að þjónusta olíuleitina þar því nú er boðað, þrátt fyrir friðlýsingu Jan Mayen í fyrra, að nauðsynlegt geti verið að nota eyjuna sem öryggis- og þjónustumiðstöð vegna olíuleitar, og eru höfn, olíugeymar og þyrluaðstaða nefnd dæmi um mannvirki sem gætu risið.

Hérlendis hafa íslensk stjórnvöld frestað fyrirhuguðu olíuleitarútboði í sumar þar sem nauðsynlegar lagabreytingar dagaði uppi á Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×