Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 2. ágúst 2024 16:07 Flugvél Eriks Nelsons lenti á Mikleyjarál í Hornafirði þann 2. ágúst 1924 klukkan 18:37 eftir átta stunda flug frá Skotlandi. Þetta var í fyrsta sinn sem flugvél var flogið yfir hafið til Íslands. Höfundur ókunnur/Flugsafn Íslands, Íslenska flugsögufélagið Eitthundrað ár eru í dag, 2. ágúst, frá því flugvél var í fyrsta sinn flogið yfir úthafið til Íslands. Flugmaðurinn sem það afrekaði var Bandaríkjamaður af sænskum ættum, Erik H. Nelson, en flugið var hluti af hnattflugi bandaríska flughersins.
Flugvélin New Orleans lent á Mikleyjarál.Höfundur ókunnur/Hornafjarðarflugvöllur Erik Nelson ásamt vélamanninum John Harding flaug frá Kirkwall á Orkneyjum og lenti sjóflugvél sinni „New Orleans" við Höfn í Hornafirði klukkan 18:37 eftir um átta klukkustunda flug. Daginn eftir tókst annari flugvél úr leiðangrinum, sem bar nafnið „Chicago", einnig að ná til Hornafjarðar. Þann 5. ágúst var þeim báðum flogið til Reykjavíkur og tók flugið frá Höfn um fimm klukkustundir. Þetta telst einn merkasti atburður íslenskrar flugsögu. Fimm árum áður hafði flugvél í fyrsta sinn verið flogið á Íslandi, þann 3. september 1919, þegar flugvél af gerðinni Avro 504K hóf sig til flugs úr Vatnsmýrinni í Reykjavík. Sú flugvél hafði verið flutt til landsins með skipi á vegum Flugfélags Íslands, þess fyrsta sem bar það nafn, en var árið eftir send úr landi þegar ekki fékkst stuðningur til frekari tilrauna með flugstarfsemi. Loftskrúfan úr flugvél Nelsons er núna til sýnis á Flugsafninu á Akureyrarflugvelli. Skrúfan er varðveitt á Þjóðminjasafni ÍslandsFlugsafn Íslands, Akureyri Flugsafn Íslands á Akureyri minnist hnattflugsins og fyrsta flugsins til Íslands með ýmsum hætti. Þannig hefur Flugsafnið fengið að láni frá Þjóðminjasafni Íslands loftskrúfu flugvélar Nelsons og verður hún til sýnis á safninu fram á næsta vor. Þá er sérstakur viðburður áformaður á safninu í næstu viku þar sem tímamótanna verður minnst. Samantekt um fyrsta flugið sem Þorkell Ágúst Jóhannsson, formaður Arnarins, Hollvinafélags Flugsafns Íslands, ritaði má lesa hér á heimasíðu Flugsafnsins. Sjóflugvélin New Orleans dregin upp á steinbryggjuna í Reykjavíkurhöfn þann 5. ágúst 1924. Flugmaður hennar var Erik H. Nelson og honum til aðstoðar John Harding.Jón Jónsson frá Þjórsárholti/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Ljósmyndasafn Reykjavíkur minntist aldarafmælis þessara tímamóta í samgöngusögu Íslands fyrr á árinu með fyrirlestri Leifs Reynissonar sagnfræðings. Leifur sagði þar að þessum viðburði hefði lítið verið hampað í sögubókum en full ástæða væri til að draga þetta fram nú þegar hundrað ár væru liðin. „Árið 1924 var þetta stórviðburður. Því að það var flogið um haf langa vegalengd. Og við vorum hluti af heimsviðburði,” sagði Leifur í frétt Stöðvar 2, sem sjá má hér:
Fréttir af flugi Sveitarfélagið Hornafjörður Söfn Tengdar fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Ljósmyndasafn Reykjavíkur minntist þess í dag að eitthundrað ár verða liðin í sumar frá því flugvélar flugu í fyrsta sinn yfir hafið til Íslands. Þessa dagana standa alþjóðasamtök flugfélaga fyrir ráðstefnu í Reykjavík um hvernig bæta megi þjónustu á flugvöllum á heimsvísu. 7. maí 2024 22:34 Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Innlent Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Innlent Fleiri fréttir Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Sjá meira
Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Ljósmyndasafn Reykjavíkur minntist þess í dag að eitthundrað ár verða liðin í sumar frá því flugvélar flugu í fyrsta sinn yfir hafið til Íslands. Þessa dagana standa alþjóðasamtök flugfélaga fyrir ráðstefnu í Reykjavík um hvernig bæta megi þjónustu á flugvöllum á heimsvísu. 7. maí 2024 22:34