Innlent

Ögmundur þakklátur bílstjóra fyrir 40 ára þjónustu

Jónas náði þeim áfanga síðastliðinn föstudag að hafa ekið strætisvagni í 40 ár. Mynd/www.innanrikisraduneyti.is
Jónas náði þeim áfanga síðastliðinn föstudag að hafa ekið strætisvagni í 40 ár. Mynd/www.innanrikisraduneyti.is
Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngumála, heiðraði á föstudaginn Jónas Engilbertsson sem ekið hefur strætisvagni í Reykjavík í fjóra áratugi. Einnig var Jónas heiðraður af Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.

„Jónas Engilbertsson hefur auk þess verið samferðarmaður minn í verkalýðsbaráttunni undanfarna áratugi en hann hefur lengi verið trúnaðarmaður hjá Strætó og alla tíð kraftmikill baráttumaður á vettvangi Strafsmannafélags Reykjavíkurborgar og BSRB þar sem ég var jú formaður í rúma tvo áratugi,“ segir Ögmundur á heimasíðu sinni. „Húrra fyrir almenningssamgöngum, húrra fyrir Jónasi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×