Innlent

200 lítrum af dísilolíu og fartölvu stolið

Fyrir um viku síðan var 200 lítrum af dísilolíu stolið af kranabifreið og skotbómulyftara sem voru við Kuldabola í Þorlákshöfn. Sömu nótt var brotist inn í kaffiskúr á gámasvæðinu við höfnina. Þar var mikið rótað til, kaffi og pappír dreyft um skúrinn og fartölvu var stolið. Þá var jafnframt gerð tilraun til að fara inn í gáma á svæðinu.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að þeir sem voru þarna að verki hafi ollið miklum skemmdum. Lögreglan biður alla þá sem hugsanlega búa yfir vitneskju um málin að hafa samband í síma 480-1010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×