Innlent

Norrænir ráðherrar ræddu mænuskaða í Finnlandi

Mynd úr safni
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sagði á fundi velferðaráðherra Norðurlandanna í Finnlandi síðustu viku að umferðarslys væru ein höfuðorsök meiðsla, sér í lagi hjá ungu fólki.

Ráðherrarnir voru sammála um nauðsyn þess að velferðarkerfi þjóðanna séu sterk, þau þurfi að taka mið af lýðfræðilegri þróun og bera breytingar sem fylgja hækkandi hlutfalli aldraðra. Umfjöllun um virka og heilbrigða öldrun bar hátt á fundi ráðherranna. Þeir lögðu allir áherslu á að Norðurlandaþjóðirnar væru í fremstu röð varðandi öldrunarþjónustu og heilbrigði en töldu jafnframt að samstarf þjóðanna í þessum efnum væri gefandi og mikils virði.

Guðbjartur sagði í ræðu sinni að í tengslum við alheimsátak Sameinuðu Þjóðanna gegn umferðarslysum hefði Íslands, eins og önnur lönd, skuldbundið sig til að gera ráðstafanir sem fækka umferðarslysum og bjarga með því mannslífum og fækka fötlunum. Ríkisstjórn Íslands hefði gert ýmsar ráðstafanir í því sambandi og væri ein þeirra að styðja við störf Mænuskaðastofnunar Íslands en tæpur helmingur þess fólks sem hlýtur skaða á mænu og lamast vegna slysa hlýtur skaðann í umferðarslysum.

Hann sagði að Ísland hefði lagt fram tillögu hjá Norrænu ráðherranefndinni þess efnis að ráðið kæmi á fót starfshópi lækna og vísindamanna sem hefði það hlutverk að skoða útgefið efni með tengist rannsóknum á mænunni.

Auður Guðjónsdóttir, stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands, segir að með ræðu sinni sé ráðherran meðal annars að framfylgja samþykkt um mænuskaða sem forsætisráðherra lagði fyrir ríkisstjórn í mars síðastliðnum en húnf jallar um að Ísland taki að sér að vekja athygli á mænuskaða á alþjóðavísu ásamt öðru.

Hún segir að mjög erfiðlega gangi að þróa meðferð við mænuskaða í átt að lækningu og bindur miklar vonir við að tillaga Íslandsdeildar Norðurlandaráðs til Norrænu ráðherranefndarinnar verði samþykkt á þingi Norðurlandaráðs í nóvember næstkomandi.

Verði starfshópnum komið á fót muni verða lagður grunnur að skipulagðri leit að lækningu á mænuskaða með stuðningi Norðurlandaráðs og muni það ekki einungis gagnast mænuskaða heldur öllu miðtaugakerfinu. Auður segir að mikil vannýtt vísindaþekking sé til á sviðinu og segir að það ætti að vera norrænt markmið að Norðurlöndin beittu sér sameiginlega fyrir því að þekkingin verði sameinuð og samnýtt svo að fyrr gangi að finna lækningu.

Hún segir að Siv Friðleifsdóttir alþingismaður og formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs hafi borið tillöguna upp á fundi velferðarnefndar sem haldinn var í tengslum við Norðurlandaþingið í nóvember 2010 og að í janúar 2011 hafi velferðarnefnd samþykkt tillöguna. „Nú ríður á að íslensku þingmennirnir fylgi málinu stíft eftir og hafi það í gegn á sjálfu Norðurlandaþinginu en með því myndi Ísland ekki einungis gera mannkyninu mikinn greiða heldur einnig færa heiður heim í tímans rás," segir Auður að lokum.



 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×