Innlent

Í fimm daga gæsluvarðhald vegna líkamsárásar

Karlmaður, sem braust inn í íbúð annars manns á Akranesi undir morgun í gær og veitti honum alvarlega áverka með barefli, var seint í gærkvöldi úrskurðaður í allt að fimm daga gæsluvarðhald.

Hann er sakaður um húsbrot og alvarlega líkamsárás. Þrátt fyrir meiðsl, tókst þolandanum að yfirbuga árásarmanninn og halda honum föstum uns lögregla kom og handtók hann, en síðan var þolandinn fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi, þar sem gert var að sárum hans.

Hann hlaut meðal annars stóran skurð á höfði. Hann var útskrifaður af sjúkrahúsinu að meðferð lokinni. Ekki liggur ljóst fyrir hvað árásarmanninum gekk til, en hann var í annarlegu ástandi þegar framdi verknaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×