Innlent

Nýr fundur boðaður í deilu flugmanna í dag

Ríkissáttasemjari hefur boðað til sáttafundar með flugmönnum Icelandair og samningamönnum félagsins, klukkan hálf tvö í dag, eftir árangurslausan samningafund á laugardag.

Þrjú flug, sem fara áttu héðan til Gautaborgar, Kaupmannahafnar og Parísar í nótt, voru felld niður, en félagið hefur ekki boðað frekari niðurfellingu að svo stöddu, vegna yfirvinnubanns flugmanna. Það hvetur hinsvegar farþega til að fylgjast vel með framvindu mála á heimasíðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×