Innlent

Sofnaði undir stýri og hafnaði út í mýri

Ökumaður sofnaði í bíl sínum á ferð eftir Eyjafjarðarbraut-Eystri í nótt og vaknaði við að bíllinn var komin útaf og út í mýri.

Þar sat bíllinn kol fastur og hringdi ökumaður á aðstoð lögreglu, sem sótti hann, en öfluga dráttarvél þarf til að ná bílnum úr mýrinni. Ökumanninn sakaði ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×