Innlent

Mega óvænt hefja veiðar á svæði A á miðnætti

Strandveiðibátar á svæði A, sem nær frá Snæfellsnesi inn í Ísafjarðardjúp, mega óvænt hefja veiðar á miðnætti, þótt þeir séu löngu búnir með júníkvótann.

Því veldur ný reglugerð, sem eykur strandveiðikvótann um 1.900 tonn og fer um það bil þriðjungur hans á vestursvæðið. Svo kemur júlí kvótinn um mánaðamótin.

Á hinum þremur svæðunum eru bátarnir ekki búnir með júníkvótann og hafa stundað veiðarnar þegar veður leyfir, en kvótinn á vestursvæðinu kláraðist á fimm virkum dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×