Innlent

Ók ofan í skurð og gjöreyðilagði bílinn - ökumaður grunaður um ölvun

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Karlmaður ók bifreið sinni út af veginum á Kjarnagötu á Akureyri klukkan sex í morgun og hafnaði ofan í skurði samkvæmt lögreglunni á Akureyri.

Þrír farþega voru í bílnum en þeir virðast hafa sloppið ómeiddir. Þegar lögreglan kom á vettvang vaknaði grunur um að ökumaðurinn hefði verið ölvaður.

Hann var því handtekinn og færður í fangageymslur lögreglunnar þar sem hann fékk að sofa úr sér og var síðan yfirheyrður. Maðurinn er á þrítugsaldri. Bíllinn er gjörónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×