Innlent

Gæsluvarðhald yfir Black Pistons staðfest í Hæstarétti

Mynd/Vísir.is
Hæstiréttur hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri sem var handtekinn í maí, ásamt öðrum manni, vegna gruns um meiriháttar líkamsárás, húsbrot og frelsissviptingu. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 21. júlí næstkomandi en hinn maðurinn hefur hafið afplánun á eftirstöðvum af 2 ára dómi sem hann fékk fyrir að bera eld að húsi.

Báðir mennirnir voru handteknir í Hafnarfirði í síðasta mánuði eftir að lögreglu barst tilkynning um líkamsárás. Sá sem fyrir henni varð er rúmlega tvítugur karlmaður en hann var með áverka víða á líkamanum og er meðal annars nefbrotinn. Talið er að honum hafi verið haldið nauðugum í meira en hálfan sólarhring og að barsmíðarnar hafi farið fram á jafnvel fleiri en einum stað. Á dvalarstað árásarmannanna var lagt hald á bæði fíkniefni og ýmis barefli.

Þeir og þolandinn eru allir taldir tengjast Black Pistons klúbbnum sem er stuðningsklúbbur Outlaws.

Sá mannanna sem nú hefur aftur hafið afplánun var talinn hafa rofið almennt skilorð reynslulausnar með aðkomu sinni að áðurnefndu líkamsárásar- og frelsissviptingarmáli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×