Innlent

Hælisleitandi með fölsuð skilríki á Norrænu

Norræna á Seyðisfirði
Norræna á Seyðisfirði Mynd/GVA
Lögreglan á Egilsstöðum hefur nú í haldi erlendan mann sem kom til Seyðisfjarðar með Norrænu í gær. Maðurinn var tekinn höndum þegar í ljós kom að skilríki hans voru fölsuð, en hann segist vera frá Palestínu og er hingað komin í hælisleit.

Maðurinn, sem er 24 ára gamall, verður í haldi lögreglu á Egilsstöðum á meðan fölsunarmálið er rannsakað. Að því loknu verður hann sendur til Reykjavíkur þar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Útlendingastofnun munu taka við málsmeðferð og hælisumsókn mannsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×