Innlent

Svona verða há­tíðar­höldin á fimmtu­daginn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Halla Tómasdóttir verðandi forseti með fjölskyldu sinni á kosningakvöld þann 1. júní þegar sigur var í höfn.
Halla Tómasdóttir verðandi forseti með fjölskyldu sinni á kosningakvöld þann 1. júní þegar sigur var í höfn. Vísir/Vilhelm

Vikivaki verður sunginn í Dómkirkjunni, Vetrarsól í Alþingishúsinu og almenningur getur fylgst með af risaskjá á Austurvelli. Dagskráin fyrir innsetningarathöfn Höllu Tómasdóttur liggur fyrir.

Athöfnin fer fram í Dómkirkjunni og Alþingishúsinuog hefst dagskrá klukkan 15:30.

Almenningur er boðinn velkominn á Austurvöll til að fylgjast með athöfninni og fagna nýjum forseta. Þar verða settir upp skjáir svo þeir sem þar eru staddir geti fylgst með því sem fram fer. Að loknu drengskaparheiti minnist forseti Íslands fósturjarðarinnar af svölum þinghússins.

Þá verður Smiðjan, nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis, í fyrsta sinn nýtt að lokinni embættistöku forseta Íslands fyrir gesti athafnarinnar. Smiðjan var tekin í notkun um síðustu áramót, en við fyrri embættistökur hefur móttakan farið fram í Alþingishúsinu.

Eins og fram hefur komið hefur Halla Tómasdóttir boðið rúmlega hundrað manns til embættistökunnar sem mun fylgjast með innsetningunni í sal í Smiðju. Gestalistann má sjá í fréttinni að neðan.

Þingmenn, ráðherrar, fyrri forsetar og aðrir gestir í þingsal munu svo sameinast gestum Höllu í móttöku í Smiðju að athöfn lokinni.

Helgistund í Dómkirkjunni

Biskup Íslands frú Agnes Sigurðardóttir og Séra Sveinn Valgeirsson sóknarprestur í Dómkirkjunni leiða stundina. Guðmundur Sigurðsson er dómorganisti, Dómkórinn í Reykjavík syngur, Sigríður Thorlacius syngur einsöng með Skólakór Kársnes. Stjórnandi er Þórunn Björnsdóttir.

Forspil – innganga:

Syngið Drottni söng nýjan,

-sálmforleikur fyrir orgel yfir íslenskt þjóðlag.

Smári Ólason

Signing

Ég byrja reisu mín,

Jesú, í nafni þín,

höndin þín helg mig leiði,

úr hættu allri greiði.

Jesús mér fylgi’ í friði

með fögru englaliði.

-

Í voða, vanda’ og þraut

vel ég þig förunaut,

yfir mér virstu vaka

og vara á mér taka.

Jesús mér fylgi’ í friði

með fögru englaliði.

-

Mitt hjartans trúartraust

til þín er efalaust,

að mér með miskunn skærri

munir þú vera nærri.

Jesús mér fylgi’ í friði

með fögru englaliði.

Sálmur: Íslenskt þjóðlag – Hallgrímur Pétursson.

Kórútsetning Smári Ólason

Kollekta

Englar hæstir, andar stærstir,

allir lofi Drottins nafn.

Allt sem andar, allt sem lifir,

uppi, niðri, himnum yfir

dýrki, lofi Drottins nafn.

-

Himinn fagur, hver einn dagur,

hver ein nótt með stjörnusafn,

stormar, þrumur, hvað sem hræðir,

hvað sem vekur, örvar, glæðir

lofi Herrans heilagt nafn.

-

Æðstum Drottni aldrei þrotni

eilíft lof og þakkargjörð.

Syngið feður, syngið mæður,

syngið niðjar, menn og bræður.

Heiðri Drottin hæð og jörð.

Kórsöngur: Þorkell Sigurbjörnsson –

John. S. Blackie / Matthías Jochumsson

Guðspjall: Matt.7. 24-27

Festingin víða, hrein og há

og himinbjörtu skýin blá

og logandi hvelfing ljósum skírð,

þið lofið skaparans miklu dýrð.

Og þrautgóða sól er dag frá degi

Drottins talar um máttarvegi,

ávallt birtir þú öll um lönd

almættisverk úr styrkri hönd.

-

Og þótt um helga þagnarleið

þreyti vor jörð hið dimma skeið

og enga rödd og ekkert hljóð

uppheimaljósin sendi þjóð,

skynsemi vorrar eyrum undir

allar hljómar um næturstundir

lofsöngur þeirra, ljóminn hreinn:

Lifandi Drottinn skóp oss einn.

Sálmur: Atli Heimir Sveinsson – Joseph Addison / Jónas  Hallgrímsson. 

Kórútsetning: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Hugleiðing frá altari

Einsöngur og kór:

Vikivaki

Valgeir Guðjónsson – Jóhannes úr Kötlum

Bæn – Faðir vor

Blessun

Ísland ögrum skorið,

eg vil nefna þig

sem á brjóstum borið

og blessað hefur mig

fyrir skikkan skaparans.

Vertu blessað, blessi þig

blessað nafnið hans.

Ísland ögrum skorið,

eg vil nefna þig

:,: sem á brjóstum borið

og blessað hefur mig. :,:

Sálmur: Sigvaldi Kaldalóns – Eggert Ólafsson

Eftirspil:

Lofið vorn Drottin, sálmforleikur fyrir orgel

Páll Ísólfsson


Athöfn í Alþingishúsinu

Einsöngur: Vetrarsól (Sigríður Thorlacius)

eftir Gunnar Þórðarson – Ólafur Haukur Símonarson

Tómas Jónsson og Ómar Guðjónsson spila undir

Lýst forsetakjöri

Drengskaparheit unnið

Forseti Íslands minnist fósturjarðarinnar af svölum þinghússins

Ávarp forseta Íslands

Þjóðsöngur Íslendinga (Dómkórinn í Reykjavík)

e. Sveinbjörn Sveinbjörnsson – Matthías Jochumsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×