Innlent

Íslenskir unglingar fávísir um endurvinnslu

Mynd/Valgarður
Íslenskir unglingar hafa margir litla trú á endurvinnslu auk þess sem þau virðast hafa litla vitneskju um heimilissorpið. Grænn fræðsluleiðbeinandi í vinnuskóla Reykjavíkur ræddi við Vísi um málið.

"Það sem kom mér samt mest á óvart hversu lítið leiðbeinendurnir vissu, þessi fræðsla var ekkert síður fyrir þau." segir Hildur Þóra Sigurðardóttir, einn þeirra sex grænu fræðsluleiðbeinenda sem í sumar hafa haldið úti umhverfisfræðslu fyrir unglinga í vinnuskólanum í Reykjavík.

Hildur segir krakkana almennt lítið hafa vitað um örlög sorpsins eftir að þau fleygja því í ruslatunnuna heima hjá sér. Þau vissu að ruslið færi í svartar tunnur fyrir utan húsið þeirra og þaðan í gulan bíl, en lengra náði vitneskjan sjaldnast.

Þá segist hún hafa orðið vör við miklar efasemdir krakkanna í garð endurvinnslu. "Maður reyndi svona helst að leiðrétta þá goðsögn að þetta fari bara hvort sem er allt á sama stað" segir Hildur og bætir við að margir hafi mótmælt endurvinnslutilmælum af krafti.

Grænu fræðsluleiðbeinendurnir unnu með unglingum sem hafa nýlokið 9. og 10. bekk og segir Hildur yngri krakkana almennt hafa verið jákvæðari en þeir sem eldri voru. Hún segist oftast hafa mætt neikvæðu viðhorfi við upphaf fræðslunnar en eftir því sem tíminn leið hafi hugur þeirra opnast betur fyrir hugmyndinni um endurvinnslu.

Öðru hvoru segist Hildur þó hafa rekist á krakka sem höfðu lagt mikla hugsun í málefnin og voru einstaklega vel með á nótunum. „og þá höfðu þau sko skoðanir á allskonar hlutum, kjarnorkustefnu svíþjóðar og eitthvað."

Hildur segir að lokum að þó svo hún hafi fundið fyrir opnara viðhorfi hjá krökkunum við seinni heimsókn í hópana, þá telji hún sumarstarfið ekki nægja. „Það þyrfti að vera einhver eftirfylgni innan skólanna til þess að árangri verði náð."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×