Innlent

Nærbuxur Greifanna fundnar - stolið í flippi

Nærbuxurnar góðu
Nærbuxurnar góðu
Nærbuxur stórhljómsveitarinnar Greifarnir, sem stolið var nýverið, eru aftur komnar í réttar hendur. Hljómsveitarmeðlimir fagna þessu mjög og segjast nú geta haldið verslunarmannahelgina eins og vera ber.

Í tilkynningu frá Greifunum segir að þjófurinn sé að öllum líkindum ungur maður sem hafi stolið nærbuxunum „í einhverju flippi,"

Hann hafði síðan samband, með númeraleynd, og sagðist munu skilja þær eftir á stað þar sem hægt væri að sækja þær.

„Sjálfsagt hefur honum orðið um og ó yfir þeirri athygli sem uppátæki þetta fékk og viljað bæta fyrir gjörðir sínar," segja Greifarnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×