Innlent

Hafnsögumenn semja og aflýsa verkfalli

Samningar hafa tekist milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og þeirra hafnsögumanna sem enn voru með lausa samninga. Þar með hefur boðuðu verkfalli hafnsögumanna verið aflýst en það átti að hefjast þann 4. ágúst n.k.

Samningarnir fela í sér að hafnsögumenn fá svipaðar launahækkanir og aðrir hafa samið um á vinnumarkaðinum. Um er að ræða hafnsögumenn við tvær stærstu álútflutningshafnir landsins, það er í Straumsvík og á Reyðarfirði auk Akureyrarhafnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×