Innlent

Annie Mist keppir til úrslita

Mynd/Stefán Karlsson
Annie Mist Þórisdóttir, 21 árs íþróttakona úr Kópavogi, keppir í dag til úrslita á heimsleikunum í crossfit, í Los Angeles. Aðrir íslenskir kappendur sem tóku þátt, eru allir úr leik en alls keppa 15 Íslendingar á leikunum.

Í gær lauk öðrum keppnisdegi en að honum loknum var niðurskurður og misstu allir íslensku þátttakendurnir rétt sinn til að halda áfram nema Annie Mist. Hún er nú í toppbaráttunni er aðeins 9 stigum á eftir heimsmeistara síðasta árs, Kristan Clever.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá keppninni á heimasíðu Cross Fit leikanna, games.crossfit.com.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×