Innlent

Hótaði lögreglumönnum

Mynd/Pjetur
Þrír gistu fangageymslur lögreglunnar í Vestmanneyjum í nótt þar af einn vegna fíkniefnamáls og fyrir að hóta lögreglumönnum. Hinir tveir gistu í fangageymslum vegna ölvunar.

Frá því á fimmtudag hafa 20 fíkniefnamál komið inn á borð lögreglunnar í Vestmannaeyjum, þar á meðal 11 síðastliðinn sólarhring. Lögregla lagði hald á 10 grömm af afmetamíni eftir húsleit í íbúðarhúsi en í öðrum tilvikum fundust neysluskammtar á fólki. Þá stöðvaði lögregla einn ökumann sem ók undir áhrifum fíkniefna.

Lögregla áætlar að á bilinu 10-11 þúsund gestir séu á Þjóðhátíð. Þeim mun fjölga í dag og á morgun þegar gestir koma til Eyja ýmist með Herjólfi eða flugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×