Innlent

Fluttur með höfuðáverka til Reykjavíkur eftir líkamsárás í Eyjum

Frá flugvellinum í Vestmannaeyjum í nótt. Þaðan var flogið með þjóðhátíðargest með höfuðáverka til Reykjavíkur.
Frá flugvellinum í Vestmannaeyjum í nótt. Þaðan var flogið með þjóðhátíðargest með höfuðáverka til Reykjavíkur.
Þjóðhátíðargestur var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur með höfuðáverka eftir líkamsárás í Vestamannaeyjum í nótt. Til átaka kom milli fjögurra manna og þurftu nokkrir þeirra að leita sér aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyjum. Þar tóku læknar þá ákvörðun að senda einn mannanna til Reykjavíkur en flogið var með hann á sjötta tímanum í morgun.

Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni og nokkur fíkniefnmál komið upp. Þrír gistu fangageymslur í nótt. Að sögn mótshaldara í Vestmannaeyjum eru um 10 þúsund manns á Þjóðhátíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×