Innlent

Rennsli í Skaftá fer minnkandi

Rennsli í Skaftá hefur farið heldur minnkandi frá miðnætti og leiðni hefur ekki aukist í vatninu í nótt.

Það er því ekki farið að bóla á hlaupi úr eystri katlinum í jöklinum en búist hefur verið við því í nokkra daga. Ekki var skyggni til flugs yfir ketilinn í gær, en úr lofti sást að vestari ketilinn, sem hljóp úr í síðustu viku, var að falla saman og tæma sig, áður en flóðið kom undan jöklinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×