Innlent

Kona stal snyrtivörum í Lyfju

Kona var handtekinn í Lyfju við Smáratorg í gærkvöldi eftir að starfsfólk þar hringdi á lögreglu, en það grunaði hana um þjófnað.

Í ljós koma að hún var með snyrtivörur fyrir hátt í hundrað þúsund krónur í fórum sínum, sem hún hafði stolið í Lyfju. Vinkona hennar, sem var líka á vettvangi, var yfirheyrð líka og sagðist hafa vitað um athæfi vinkonu sinnar, en ekki tekið þátt í þjófnaðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×