Innlent

Unglingsstúlka barin í höfuðið með hamri

Sextán ára stúlka barði jafnöldru sína í höfuðið með hamri fyrir utan íbúðarhús í Kópavogi í gærkvöldi og stakk svo af ásamt kærasta sínum.

Nágranni sá átökin og hringdi á lögreglu sem sendi tvo lögreglubíla og sjúkrabíl á vettvang. Stúlkan, sem varð fyrir árásinni var flutt á slysadeild og reyndist hún nokkuð marin, en ekki höfuðkúpubrotin.

Árásarstúlkan og kærastinn fundust svo á bensínstöð í grenndinni og voru handtekin, en sleppt í nótt, að yfirheyrslum loknum.

Stúlkurnar þekktust og greindi á um eitthvað, sem leiddi til árásarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×