Forstöðumenn ríkisstofnana íhuga að stefna ríkinu 4. ágúst 2011 18:27
Forstöðumenn ríkisstofnana íhuga að stefna ríkinu vegna tafa sem orðið hafa á, að launalækkun sem þeir tóku á sig 2008 gangi til baka. Þeir segja nýlega hækkun á launum þeirra málinu óviðkomandi, en hún kostar hið opinbera 300 milljónir á ári. Laun forstöðumanna ríkisstofnana og annarra sem heyra undir kjararáð voru lækkuð með lögum árið 2008, en árið eftir var ákveðið með bráðabirgðaákvæði að frysta þessi lægri laun til 1. desember 2010. Magnús Guðmundsson, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana, telur að lækkunin hafi numið á bilinu 9 til 15 prósent hjá hans félagsmönnum og telur einsýnt að þegar bráðabirgðaákvæðið féll úr gildi í nóvember í fyrra hefði launalækkunin átt að ganga til baka. „Það þarf ekki lögfræðing til að sjá það," segir Magnús. „Það er ólga meðal forstöðumanna. Það er mikið álag á þeim, og þeim finnst að þetta ætti að vera skýrt; Alþingi setur tímabundið ákvæði um launafrystingu og -lækkun. Þegar því lýkur, þá á þetta að breytast aftur. Menn eru óánægðir með þetta." Eins og greint var frá í gær ákvað Kjararáð nýverið að hækka laun embættismanna um 4,9 prósent. Magnús segir þessa hækkun ekki koma til móts við kröfur forstöðumannanna, heldur sé um að ræða eðlilega leiðréttingu miðað við almennan vinnumarkað, og hafi ekki með launalækkunina sem þeir tóku á sig 2008 að gera. Sú hækkun ein kemur til með að kosta hið opinbera 170 milljónir á þessu ári, en um 300 milljónir á ársgrundvelli, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaráðuneytinu. Þó forstöðumenn ríkisstofnana séu í hópi hæstlaunuðustu starfsmanna ríkisins segir Magnús af og frá að krafa þeirra um gömlu launin sé ósanngjörn. „Þessi hópur er alls ekki mjög hátt launaður. Þeir eru á bilinu 600 til 900 þúsund, og ef menn skoða lista yfir há laun, þá eru þetta lág laun í samanburðinum." Forstöðumennirnir vilja fá úr því skorið hvort hægagangur kjararáðs standist lög. „Við höfum þegar leitað til umboðsmanns alþingis með það," segir Magnús. „Hann mun skoða málið og vonandi skera úr um þetta leiðindarmál. Ef það dugir ekki, þá munu menn væntanlega fara fyrir dómstóla. Það er mikill vilji til þess ef álit umboðsmanns dugir ekki til." Spurður hvort einhverjar líkur séu á að ríkið hafi bakað sér skaðabótaskyldu vegna tafarinnar segir Magnús: „Menn telja að minnsta kosti að við eigum inni hækkunina frá 1. desember 2010."
Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina Veður Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Erlent Fleiri fréttir Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Sjá meira