Innlent

Bíll brann við Veiðileysu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bíllinn mun hafa stórskemmst. Mynd/ Vilhelm Gunnarsson.
Bíllinn mun hafa stórskemmst. Mynd/ Vilhelm Gunnarsson.
Eldur kviknaði í bíl sunnan við Veiðileysu, skammt frá Djúpavík eftir hádegi í dag. Lögreglumaður, slökkviliðsbíll og tveir sjúkrabílar eru á staðnum og var veginum lokað vegna slyssins. 

„Þetta var stór bíll með þremur bensíntönkum og það kviknaði bara í honum. Það kom reykur úr mælaborðinu og svo sprakk bíllinn einfaldlega. Ökumaðurinn náði rétt svo að sleppa út úr bílnum. Hann náði ekki veskinu sínu með eða neinu. Bíllinn var alelda,“ sagði sjónarvottur um málið í samtali við fréttastofu.

Ökumaður bílsins mun hafa sloppið ómeiddur, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×