Innlent

Laun embættismanna hækkuð

Alþingismenn eru meðal þeirra sem launahækkunin nær til.
Alþingismenn eru meðal þeirra sem launahækkunin nær til. Mynd/GVA
Kjararáð hefur ákveðið að hækka laun embættismanna ríkisins um tæp fimm prósent.

Hækkunin tók gildi fyrsta júní síðastliðinn og gildir meðal annars um alþingismenn og ráðherra en laun þeirra hafa ekki verið hækkuð síðan ákveðin var almenn launalækkun árið 2009.

Ákvörðun kjararáðs hefur verið birt á heimasíðu ráðsins og er sögð vera til samræmis við launaþróun í landinu að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×