Innlent

Bensínstöðvar lækka verð um 2 krónur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skeljungur reið á vaðið og lækkaði eldsneytisverð. Mynd/ Róbert.
Skeljungur reið á vaðið og lækkaði eldsneytisverð. Mynd/ Róbert.
Skeljungur hefur lækkað verð á bensíni og diesel á bensínstöðvum Orkunnar og Shell um 2 krónur. Atlantsolía og N1 eru einnig búin að lækka verð hjá sér. Olís hefur ekki lækkað verð.

Skeljungur segir að ástæðu lækkunarinnar megi rekja til lægra heimsmarkaðsverðs á olíu í kjölfar nýrra birgðatalna í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×